Jónína Guðnadóttir hefur um árabil verið í framvarðasveit íslenskra leirlistamanna og vakti snemma athygli fyrir einstaka nytjahluti. Hún var öflugur brautryðjandi þess að nota leirinn sem efnivið sjálfstæðra listaverka.
Oft vekja verk Jónínu áleitnar spurningar um þjóðleg gildi og þær hættur sem steðja að nútímaþjóðfélagi. Þá má greina pólitíska afstöðu til samfélagsmála og ádeilu á ríkjandi viðhorf í nokkrum verka hennar.