English |
|
Tilvistarlegur mínimalismi: Sýning í Listasafni Færeyja 8. sept. – 7. okt. 2012 Í list Jónínu Guðnadóttur tengist mínimalisminn að vissu marki þeirri samþjöppun formsins sem leirinn krefst sem efni. Það er þó ekki allur sannleikurinn, því að lágmyndir hennar samanstanda oftast af stökum hlutum, og ströng skipan dökkra forma á hvítan flötinn er í samræmi við orðskvið mínimalismans: “minna er meira”. Eins og í annarri mínimalískri íslenskri list er hugmyndalegt innihald miðlægt hjá Jónínu Guðnadóttur. List hennar fjallar um sjálfsmynd Íslendinga í nútímanum, séð annars vegar í gegnum neyslusamfélagið, hins vegar út frá dýpri grundavallarþáttum eins og landslagi, menningu sveitanna og goðsögnum. Og svo virðist sem það síðarnefnda verði æ mikilvægara í verkum hennar.
Nils Ohrt, safnstjóri Listasafns Færeyja
|
|